-
Fjarstýrð þyrla
Posted on August 17th, 2010 No commentsÞetta er eiginlega algerlega ótrúlegt! Hvernig þessi gaur getur sýnt þessar kúnstir á fjarstýrðri þyrlu.
Kannski best að láta bara myndirnar tala – ekki auðvelt að bæta neinu gáfulegu við þetta…
-
Týnd skjöl?
Posted on September 11th, 2009 No commentsAð gefnu tilefni er rétt að rifja upp hvernig skjöl eru flokkuð hjá opinberum aðilum.
Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum frá fyrstu hendi að það séu tveir flokkar skjala:
Í fyrsta lagi “under consideration” – þetta eru mikilvæg skjöl sem eru týnd.
Í öðru lagi eru skjöl sem eru flokkuð sem “under active consideration” – þessi mikilvægu skjöl eru líka týnd en verið að leita að þeim!
-
Guinnes og Jóga?
Posted on September 4th, 2009 No commentsFélagi úr Guinnesklúbbnum sendi mér þessa athyglisverðu sönnun á því að Jóga og Guinnes eru í raun ekki svo ólík þegar að er gáð.
Rannsóknir staðfesta nefninlega að Guinnes bjór hefur sömu jákvæðu áhrif og Jóga !!!

Savasana
Staða fullkominnar slökunar.

Balasana
Staða sem gefur tilfinningu fyrir friði og ró.

Setu Bandha Sarvangasana
Þessi staða kyrrir hugann og endurnærir þreytta fætur.

Marjayasana
Staða sem örvar mjaðmir og hrygginn.

Halasana
Frábært fyrir bakverki og svefnleysi.

Dolphin
Frábært fyrir axlasvæðið, brjóstkassa, fótleggi og handleggi.

Salambhasana
Frábær æfing til að örva mjóhrygginn, fótleggi og handleggi.

Ananda Balasana
Þessi staða hentar vel til að nudda mjaðmasvæðið.

Malasana
Þessi staða er fyrir ökkla og bakvöðva.
Pigeon
Mótar líkamann og eykur sveigjanleika og hjálpar til að losna við streitu.
Svo – byrjum að drekka Guinness………..
-
Porsche 911 eða Hayabusa?
Posted on April 10th, 2009 No commentsÓtrúlega töff myndband.
Njótið
Útsýni úr Suzuki Hayabusa mótorhjóli sem er að reyna að ná Porsche 911.
Ekki kannski beint til fyrirmyndar…
-
Davíð Oddson, Lalli Johns og fjármálin
Posted on April 5th, 2009 No comments
-Sendi ykkur flottar myndir af Davíð Oddsyni og Lalla Johns.
En þessum myndum fylgir saga.
Þannig var að Davíð Oddson var á gangi í miðbænum og hitti þar á förnum vegi Lalla Johns og tóku þeir tal saman eins og þeir eru vanir.

Áður en þeir kveðjast þá spyr Lalli Davíð hvort hann geti séð af 5oo krónum svona upp á kunningsskapinn og segir Davíð það ekki málið og fer í vasa sinn og dregur upp 5000 kr og réttir Lalla. Lalli varð hugsi stutta stund og segir svo ;

“Davíð minn, ekki skal mig undra þótt allt sé eins og það er í dag ef þú gerir ekki greinarmun á 500 kr og 5000 kr.”
-
Tvífarar – Trölli og Geir H. Haarde
Posted on October 15th, 2008 No commentsFékk sendar þessar áhugaverðu tvífara myndir:
Samsæriskenningasmiðir sjá oft skemmtilegar samlíkingar.
Þessi er nú ekki spurning. Vona bara að Trölla takist ekki að stela jólunum.




