Grasrótin ræðir málin
RSS icon Home icon
  • Búsáhaldabyltingin í Argentínu

    Posted on December 5th, 2010 Þrándur No comments

    Heimildarmynd um atburðina sem leiddu til efnahagshruns í Argentínu 2001. Hrunið þurrkaði út millistéttina og jók fátækt upp í 57,5%. Meðal aðalástæðna fyrir hruninu var opinber stefna um nýfrjálshyggju sem opnaði leiðir fyrir erlenda banka og stórfyrirtæki að stela milljörðum dollara. Mikið af eignum og auðlindum Argentínumanna sjálfra var sóað. Fjármálakerfi landsins var meira að segja notað til peningaþvættis af Citibank, Credit Suisse og JP Morgan.

    Afleiðingarnar voru stórkostlegar tilfæringar auðs og fátæktarvæðing samfélagsins sem náði hámarki með fjölda dauðsfalla vegna mótmæla og vannæringar.

    Er þetta það ferli sem stjórnvöld, bankar og lífeyrissjóðir vilja sjá á Íslandi?

     

    4 responses to “Búsáhaldabyltingin í Argentínu”

    1. Ég horfði á þessa mynd í október 2008 og grét vegna þess að mig grunaði að hið sama kæmi fyrir hér á Íslandi.

    2. Já – gott að rifja þetta upp núna – meðan enn er hægt að bregðast eitthvað við.

    3. Mjög athyglisvert og ótrúlega líkt.
      Það er nú þegar búið að ræna töluverðan hluta af millistjéttinni. Hefði verið fínt að geta brugðist fyrr við. En fjölmiðlarnir voru allir komnir undir hælinn á stjórnvöldum á þessum tíma (2001). Mér finnst að fjölmiðlar, sérstaklega RUV þurfi nú að sæta ábyrgð. Hinir miðlarnir eru hvort sem er með aðalmarkmið græða. RÚV á að upplýsa líka.

    4. Einmitt!

      Og RÚV eru greinilega undir hælnum á ríkisvaldinu og makka eins og þeim er uppálagt.

    Leave a reply