Grasrótin ræðir málin
RSS icon Home icon
  • Ekki Flokka Sorpið!

    Posted on July 9th, 2009 Þrándur No comments

    Það er ótrúlegt hversu jákvætt fólk getur verið að auka við vinnuframlag sitt fyrir ríkið. Við sjáum þetta til dæmis skýrt varðandi flokkun á rusli. Okkur er talin trú um að flokkun sé afskaplega umhverfisvæn, spari þjóðfélaginu ómældar upphæðir og sé atvinnuskapandi.

    Ef betur er að gáð orkar þetta nú mikið tvímælis, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

    Ef það kostar meira að farga rusli með flokkun á einfaldlega að hætta því!

    Hér þurfa að liggja fyrir nákvæmar tölur um hagkvæmni.

    Við vitum að álumbúðir eins og áldósir er hagkvæmt að safna saman og selja til endurbræðslu. Við sem neytendur fáum líka borgað fyrir að skila slíkum umbúðum inn.

    Ef við tökum aftur á móti t.d. sérflokkun mjólkurumbúða lítur dæmið allt öðru vísi út. Við þurfum að skola umbúðirnar úr vatni, við þurfum að hafa sérstakar söfnunarumbúðir sem taka pláss. Við þurfum síðan að aka með umbúðirnar (nota bensín) á næstu mótttökustöð (sem þarf líka sitt pláss og gám. Gáminn þarf síðan að flytja eitthvert til að hægt sé að endurvinna  umbúðirnar (sem reyndar er örugglega ekki nokkur leið þar sem þær eru blanda af pappír og plasti).

    Það þarf allavega að sannfæra mig með sterkum rökum að svona þegnskylduvinna þjóni raunverulega einhverjum tilgangi (öðrum en að halda fólki uppteknu).

  • Michael Jackson – Top 10 lögin – In Memoriam

    Posted on June 27th, 2009 Þrándur No comments

    Þegar goðsagnir deyja verður oft fátt um orð. Vil því bara minna á hvað Michael Jackson hefur gefið okkur.

    I Want You Back – Jackson 5

    ABC – Jackson 5

    I’ll Be There – Jackson 5

    Wanna Be Startin’ Somethin’

    Billie Jean

    Beat It

    Thriller

    We Are The World

    Man In The Mirror

    Scream

    Takk fyrir okkur 🙂

  • Dansandi hugmynd?

    Posted on June 11th, 2009 Þrándur No comments

    Hvernig fer frumkvöðull að því að fá aðra til að fylkja sér á bak við hugmynd?

    Jú – hann byrjar “hreyfingu”…

    Í þessu myndbandi er frumkvöðullinn í fyrstu einn og einmana að dansa trylltan dans. Fljótlega bætist einn í viðbót við. Þegar sá þriðji kemur í hópinn verður SPRENGING – allir hópast að og taka þátt.

    Þessir þrír fyrstu gegna mikilvægasta hlutverkinu. Fyrsti með því að sýna þolinmæði og halda áfram þó það geti verið vandræðalegt. Annar með því að sýna samstöðu. Sá þriðji gegnir greinilega því hlutverki að koma örðum til að sjá þetta sem hópathöfn sem gaman er að taka þátt í.

    Myndbandið sýnir líka hvernig vírusar virka smitandi (ekki þessir líffræðilegu – heldur félagslegu).

    Lærdómur: Haltu áfram að dansa!

  • Venjulegt fólk sem leiðtogar?

    Posted on May 17th, 2009 Þrándur No comments

    Seth Godin upp á sitt besta. Seth sýnir hvernig vefurinn er að breyta markaðssetningu frá massa markaðssetningu yfir í meiri áherslu á mannlega þáttinn. Fólk kemur saman og býr til hópa í kring um ákveðnar hugmyndir og gildi og er leitt áfram af leiðtoga. Þessar nýju félagseiningar eru sem bergmál fortíðar sem við þekkjum sem ættbálka.

    Seth hvetur okkur til að fá hugmynd sem er þess virði og koma af stað hreyfingu. Þú getur leitt hreyfingu og fengið venjulegt fólk til að fylga henni og í sameiningu getið þið stuðlað að miklum breytingum.

  • Íslensk teiknimynd tilnefnd í SIGGRAPH

    Posted on May 14th, 2009 Þrándur No comments

    Þessi skemmtilega teiknimynd er tilefnd í SIGGRAPH í Ágúst.

    Myndin er gerð af Sveinbirni J. Tryggvasyni sem er nemandi við Vancouver Film School. Námið er kallað VFS 3D Animation & Visual Effects.

    Sveinbjörn notar Maya og Renderman…

    Tónlistin er eftir Einar Sverri bróður Sveinbjarnar.

    Lestu meira um Sveinbjörn og myndina.

    Til hamingju frændur 🙂

  • Óbeislað afl…

    Posted on May 14th, 2009 Þrándur No comments

    Samfélagið – Frumkvæði er ein af nýjustu afurðum Hugmyndaráðuneytisins. Það er sérstaklega jákvætt og gott starf sem þar er unnið. Ný fersk hugsun og vettvangur fyrir jákvæða orku og samstarf þar sem veikleikum er breytt í styrkleika.

    Mæli með að þú kynnir þér málið og besta að taka þátt:

    Tækifærið með hið óbeislaða vinnuafl þjóðar

    Hugmyndaráðuneytið hefur verið að vinna undanfarinn mánuð að verkefni sem kemur að úrlausn mála fyrir allt það hæfileikaríka fólk sem hefur tíma á lausu í sumar og á komandi misseri.

    Samfélagið FrumkvæðiVerkefnið hefur fengið heitið Frumkvæði og verður kynnt með prompi og pragt í húsnæði Hugmyndaráðuneytisins í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2 kl. 10.00 á mánudaginn. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra mun þá kynna verkefnið og opna fyrir undirbúningsvefinn.

    Hugmyndin á bak við verkefnið er að bjóða upp á öflugt umhverfi til að samræma og bjóða öllu því óbeislaða vinnuafli landsins uppá tækifæri til sköpunar og athafna. Verkefnið mun hefjast í sumar þegar Samfélagið Frumkvæði mun opna á vefnum.

  • Jóhanna – Is it true?

    Posted on May 13th, 2009 Þrándur No comments

    Til hamingju með flott lag og að komast áfram!

    Allir sem horfðu á forkeppnina í gær hér á heimilinu voru sammála um að lagið og flutningurinn hefði borið af. Langbest 🙂

    Nú er bara að sjá hvort lagið kemst ekki lengra…

  • Tilgangsleysi allra hluta…

    Posted on May 6th, 2009 Þrándur No comments

    …eða “Story of Stuff”

    Saga “hluta” rakin frá auðlindum, framleiðslu, sölu, notkun og þar til þeir verða að úrgangi. Skýrir á myndrænan hátt hvernig allir þessir hlutir í kringum okkur hafa áhrif á samfélagið bæði nær og fjær og hvernig þetta er meira og minna hulið fyrir hinn venjulega neytanda.

    Story of Stuff er rúmar 20 mínútur þar sem hratt er farið yfir en samt skyggnst undir yfirborð framleiðslu og neyslumynsturs.  Hér er sýnt fram á tengsl við umhverfisáhrif og þjóðfélagsleg áhrif. Gæti jafnvel kennt þér eitthvað eða komið til að brosa og hver veit nema þú lítir málin öðrum augum eftir en áður…

    Gaman að sjá hvernig stóru fyrirtækin hafa stjórnmálamennina í vasanum – greinilega til í útlöndum líka 🙂

    Hvað finnst þér?