-
Hamilton dæmdur úr leik.
Posted on April 3rd, 2009 No commentsJæja nú er fjörið að byrja í Formúlunni. Fyrsta keppnin afstaðin og úrslitin nokkuð óvænt svo ekki sé fastara að orði kveðið. Það sem stóð þó upp úr eftir keppnina um síðustu helgi var án efa óheiðarleiki McLarenliðsins. Venju samkvæmt þarf McLarenliðið að beita fyrir sig svindli til að komast áleiðis í Formúlunni. Hvorki ökumenn né bílar hjálpa þar til. Málsatvik eru þau að Hamilton laug blákalt að eftirlitsmönnum kappakstursins sem leiddi til þess að Trulli fékk refsingu. Árangur Hamiltons er því sem fyrr á kostnað annarra keppenda. Tæknin kom hins vegar upp um kauða þar sem hljóðupptökur af talsambandi hans við stjórnborð McLarenliðsins voru ekki í neinu samhengi við framburð hans. Málalokin urðu þau að lygamörðurinn var dæmdur úr leik en Trulli fær 3 sætið verðskuldað. Svona eru aðferðir McLarenmanna í Formúlunni. Það eru óheiðarlegir menn víðar en á Íslandi. Skamm skamm.
Leave a reply