Grasrótin ræðir málin
RSS icon Home icon
  • Aðildarumsókn

    Posted on April 28th, 2009 Jón H. No comments

    Hvað er eðlilegt framhald í samningaviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna. Vinstri grænir hafa sagt kjósendum sínum að þeir séu hlyntir því að láta þjóðina ráða varðandi samning um aðild að ESB. Þeir hafa gefið í skyn að þeir vilji jafnvel þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sækja skuli um. Hinn stjórnarflokkurinn hefur sagt að hann vilji aðildarumsókn strax án þess að þjóðin sé spurð um það sérstaklega áður. Rökin: Við megum engan tíma missa og að þeir sem hafa forsjá mála hjá ESB núna séu vinir okkar hjá ESB, finnar og svíar. Staðan virðist því vera sú að semja þarf um hvað hratt er farið í málin og hvort spyrja eigi þjóðina áður en umsókn er formlega send til ESB. Hvernig sem á er horft virðast Vinstri grænir ekki trúverðugir í sínum máflutningi nema þeir samþykki annað hvort áætlun um hvenær sótt er um eða hvenær þjóðin er spurð. Nú virðast varaformenn flokkanna hafa fengið það verkefni í fangið að lenda því hvor leiðin er farin. Vonandi bera þau gæfu til að finna samningsflöt þar sem sett er fram tímasett áætlun um framangreint. Það að segja að niðurstaða kosninganna hafi ekki verið krafa um aðildarumsókn má styðja rökum. Hitt má ekki síður styðja rökum að niðurstaðan hafi verið sú þjóðin hafi treyst þessum tveimur flokkum að ráða málinu til lykta. Hitt er svo staðreynd að Samfylkingin er nú stærsti flokkurinn og setti þetta mál á oddinn. Hún hefur jafnframt aðra kosti til stjórnarmyndunar. Því hníga rök að því að sjónarmið Samfylkingar eigi að ráða miklu um niðurstöðuna. Auðvitað ráða ekki síður hinu brýnu mál endurreisnar efnahagskerfisins en þar hefur Samfylkingin sett umsókn um aðild sem hluta af þeirri heildarlausn. Úrlausn þessa máls hlýtur því að vera brýnt frá öllum hliðum séð, að ekki sé talað um ákall atvinnulífsins um nýjan gjaldmiðil og stöðugleika til framtíðar. Það að skipta um gjaldmiðil er nauðsynlegt og um leið endurreisn á trúverðugleika íslensks efnahagslífs. Vera kann að aðrir möguleikar séu til staðar en sterk undiralda aðilarumsóknar krefst þess að það mál sé leitt til lykta. Nú er tími orða að líða á enda og tími aðgerða að hefjast. Ágætu stjórnmálamenn! Hefjið verkið og segið okkur hvernig að því skuli unnið.

    Reykjavík, 28. apríl 2009

     

    One response to “Aðildarumsókn”

    1. Já, við skulum vona að þetta verði ekki þannig að þessi stjórn haldi áfram aðgerðarleysi!

      Auðvitað á að sækja um aðild ef það er eina leiðin til að fá úr því skorið hvað er í boði.

      Á sama tíma er nauðsynlegt að tryggja að ESB seilist ekki í auðlindir okkar. Það er hlutverk stjórnmálamannanna að hlusta á raddir fólksins og efla og dýpka umræðuna.

    Leave a reply