Hvað á að kjósa?

Ég var að prófa að máta saman mínar skoðanir við stefnu flokkanna með því að nota Kosningakompás MBL. – Bráðsniðugt tól. Ekki síst þar sem flokkarnir eru óvenju ósamstilltir við vilja þjóðarinnar um þessar mundir.

Niðurstaðan var þessi:

Kosningakompás mbl.is – niðurstaða

Samsvörun svara þinna við svör flokkanna er sem hér segir:

Flokkur Samsvörun
Borgarahreyfingin (O) 84%
Samfylkingin (S) 76%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 69%
Framsóknarflokkur (B) 66%
Vinstrihreyfingin – grænt framboð (V) 64%
Lýðræðishreyfingin (P) 60%
Sjálfstæðisflokkur (D) 48%

Miðað við þetta ætti ég að kjósa Borgarahreyfinguna og það er reyndar margt sem bendir til að ég geri það.

Hvað ætlar þú að kjósa?

Comments

2 responses to “Hvað á að kjósa?”

  1. Ragnar Avatar

    Ég fór að ráðum Þrándar og tók prófið. Eins og hjá honum fékk Borgarahreyfingin flest atkvæði og því blasir við að kjósa þá á laugardaginn. Ég læt liggja á milli hluta hvaða flokkur hlaut fæst atkvæði.

  2. Hörður Avatar

    Sælir ég er borgari líka með eitt prósent meira en vinstri grænn. 75 prósent borgaari en 74 prósent vinstri grænn.