-
Hvað gerðist við búsáhaldabyltinguna?
Posted on June 23rd, 2009 No commentsJá hvað breyttist raunverulega við búsáhaldabyltinguna?
Það sem mér finnst kannski standa upp úr er það að ÞJÓÐIN VAKNAÐI. Allt í einu sér venjulegt fólk í gegnum blekkinguna sem stjórnmálamenn og viðskiptajöfrar hafa búið til í kring um sig.
Þátturinn Bullshit á Skjá 1 sýnir blekkingarmeistara að störfum. Munurinn á þeim og þessum fyrrnefndu er ekki mikill.
Vandamálið er að stjórnmálamennirnir halda að þjóðin sofi ennþá Þyrnirósarsvefni og þeir geti dundað sér við gæluverkefni og haldið áfram að karpa um lítilsverð mál.
NEI!
Stjórnmálamenn halda að öll mál sé hægt að færa í flokkspólitískan búning og útnefna öll mál annað hvort “sín” eða “hinna”.
NEI!
Stjórnmálamenn halda að það skipti almenning einhverju máli hver úr fjórflokknum er við stjórn.
NEI!
Stjórnmálamenn halda að það sé hægt að leggja álögur á almenning sem er langt umfram það sem aðrar þjóðir búa við (eða hafa nokkru sinni staðið undir).
NEI!
Hér þarf að koma til miklu stærri hugsun. Stjórnmálamenn þurfa að hætta að hugsa um þjóð sína sem sofandi hálfvita og leggja til lausnir og leiðir sem eru stærri en áður hefur sést.
Ég spái því að sú stjórn sem nú situr eigi ekki eftir að sitja lengi. Flokkarnir voru einfaldlega fjarri því að vera búnir að ganga í gegnum einhverja endurnýjun á hugmyndafræði og nálgun til að það séu nokkrar líkur á því.
Stjórnmál síðustu ára hafa snúist um smálagfæringar á þjóðarskútunni, t.d. að skrapa og mála. Nú þarf að byggja nýja nánast frá grunni. Það þýðir að nota þarf allt önnur og öflugri verkfæri og annað verklag. Það þarf líka að leggja harðar að sér og átta sig á því fyrir hverja er verið að vinna.
Ef núverandi stjórnmálamenn átta sig ekki á því hversu stórt verkefnið er þurfa aðrir að koma að verki. Þjóðin er vakandi og vill taka þátt í verkefninu.
Skilaboðin til stjórnmálamanna eru skýr:
VAKNIÐ!