-
Kerfishrun?
Posted on May 8th, 2009 No commentsÉg setti inn eftirfarandi athugasemd hjá Vilhjálmi Þorsteinssyni þar sem hann setur fram skuldastöðu heimilanna á grafísku formi.
Mjög skýrt fram sett, en niðurstaðan að mínu mati röng. Maður hefði einmitt haldið að hér þurfi réttlætissjónarmið að komast að. Hélt eiginlega að svona félagshyggjustjórn myndi taka skýrari afstöðu MEÐ þegnum landsins.
Það eru AFAR óvenjulegir atburðir sem hafa orðið. Þeir hafa orðið af völdum banka og stjórnvalda. Því þarf að beita óvenjulegum aðferðum og við þurfum HUGRAKKA stjórnmálamenn.
Leiðinlegt að sjá rök um að eitthvað sé “framsóknarhugmynd” og þar með óþarfi að ræða frekar!
Einnig finnst mér villandi að tala um “aðstoð” þegar réttara væri að ræða um “leiðréttingu”.
Hættan á algeru kerfishruni held ég að sé talsverð og svona hroki eins og mér fannst ég heyra á Gylfa og fleiri ráðherrum hjálpar þar ekki til. Hver væru áhrifin af því að 40-50 þúsund heimili hættu að borga? Hver borgar skattana ef stór hópur skattborgara er gjaldþrota eða flúinn af landi? Hvað verður um eignaverðmæti eigna sem enginn vill búa í?
Held að það verði að finna almenna lausn sem byggir á sanngirni og því að koma í veg fyrir fólksflótta og upplausn.
Hann svarar nú ekki þessum athugasemdum beint, en ég held að þetta sé stóra málið. Vilhjálmur er tölvumaður og ætti að þekkja það að ef tölvur frjósa þarf að fara í stórar aðgerðir og jafnvel þarf að endurræsa.
Sama held ég að eigi við um fjármálaástandið núna. Það hefur orðið KERFISHRUN (gengishrun, bankahrun, stjórnmálahrun o.s.frv.)
Getur ekki verið að eina leiðin sé að beita samsvarandi aðferðum?