-
Greiðsluverkfall?
Posted on June 20th, 2009 No commentsKjallaranum var að berast þessi tilkynning frá Hagsmunasamtökum heimilanna:
Boðun greiðsluverkfalls – mikilvæg ákvörðun félagsmanna
Hagsmunasamtök heimilanna munu standa fyrir opnum félagsfundum þriðjudaginn 23. júní kl. 20:00 þar sem yfirskriftin er greiðsluverkfall. Félagsmenn munu verða beðnir um að ganga til kosninga um hvort samtökin skulu hefja formlegt greiðsluverkfall. Formleg atkvæðagreiðsla fer fram með rafrænum hætti í kjölfar fundarins.
Fundurinn samanstendur af stuttu erindi um aðdraganda greiðsluverkfalls, tilhögun, markmið og tilgang auk umræðna fundarmanna. Borin verður upp ályktun fundarins og leitað samþykkis fundarmanna. Í kjölfarið verður sett af stað rafræn kosning á internetinu um hvort stjórn HH fái umboð til skipunar verkfallsstjórnar. Fáist slíkt umboð hjá félagsmönnum mun sú verkfallsstjórn sem stjórnin setur saman ákveða nánar um framkvæmd greiðsluverkfallsins.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér greiðsluverkfallið á heimasíðunni og senda inn spurningar og/eða tillögur á heimilin@heimilin.is
Eftirfarnir staðir eru fundarstaðir:
Fundartími: 23. júní 2009 kl. 20:00Reykjavík: Iðnó við tjörnina, tengiliður undirbúningsnefndin/ Guðrún Dadda
Keflavík: Frumleikhúsið Vesturbraut 17, Laufey Kristjánsdóttir
Akureyri: Um borð í Húna (Húni II), tengiliður Sigurbjörg Árnadóttir
Selfoss: 800 barinn, tengiliður Magnús Vignir
Golfhúsið Snússa á Flúðum, tengiliður Kristín MagdalenaFundirnir hafa verið og verða auglýstir í útvarpi næstu daga. Stjórnin hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundina til að sýna samstöðu og láta í sér heyra. Þetta á einnig við um þá sem eru á móti aðgerðum af þessu tagi, það er nauðsynlegt að þeir láti einnig í sér heyra.
Við hvetjum félagsmenn einnig til að ræða um Hagsmunasamtök heimilanna við vini og vandamenn, segi frá tilgangi og starfi samtakanna og vísa á heimasíðuna. HH er breiðfylking fólks úr öllum áttum og mikilvægt að raddir félagsmanna berist stjórninni í stríðum straumum svo þær móti stöðugt starf og stefnu.
—
Hagsmunasamtök heimilanna
www.heimilin.is
Framlög til HH af frjálsum vilja
(o: 1110-26-5202, kt. 520209-2120 :o)Hvað ætlar þú að gera?