Grasrótin ræðir málin
RSS icon Home icon
  • Leiðin til helvítis 2

    Posted on June 28th, 2011 Reynir No comments

    Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég grein í blaðið sem hét Leiðin til helvítis. Það var um eiturlyfjavandann, og um það hvað við gerum í góðri trú, en virkar alveg öfugt við það sem ætlast er til. Mér verður oft hugsað til Sjálfstæðismanna. Af hverju kýs fólk Sjálfstæðisflokkinn? Sérstaklega núna þegar hann hefur komið endanlega út úr skápnum sem einn spilltasti stjórnmálaflokkur á vesturlöndum. Hann setti fjármálakerfið á hliðina. Hann seldi bankana þrátt fyrir varnaðarorð stjórnarandstöðunnar. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins aðhafðist ekkert þó að seðlabankar og ríkisstjórnir annara landa hrópuðu á hana að gera eitthvað áður en allt færi á hliðina. Þetta stóð í mörg ár og þeir lokuðu augunum og lugu að þjóðinni alveg fram á síðasta dag. Öll spillingarmálin er óþarfi að telja upp. Fjölmargir þingmenn flokksins eru flæktir í þau. Þeir viðurkenna engin mistök, segja bara að bankamennirnir hafi valdið hruninu. Það hafa verið bankamenn í 100 ár á Íslandi, en þeim var ekki gert mögulegt að svindla svona fyrr en nú. Þrátt fyrir allt þetta: 40% þjóðarinnar finnst rétt að kjósa flokkinn! Þetta er ekki Rússland. Það eru margir aðrir flokkar og minna spilltir sem hægt er að kjósa. Það er örugglega einhver skýring á þessu. Ég held að þetta sé einskonar trú. Fólki finnst það vera hluti af fjölskyldu. Einskonar ættarveldi, svipað og í Afríku. Davíð Oddson var ættarhöfðinginn. Menn voru ánægðir með hann, hann réði öllu eins og ættarhöfðingjar eiga að gera. Svo voru það hinir. Þeir voru hættulegir. Það voru Kommúnistarnir. Flokkurinn barðist gegn Kommúnistunum. Vinstri menn sneru baki við Kommúnismanum uppúr 1960, en þá kölluðust þeir Sósíalistar sem var álíka skammaryrði. Þannig varð til jafnan: Allir hinir = Sósíalistar = Kommúnistar = Alræðisstjórn í Sovétríkjunum. Alræðisstjórnin í Sovétríkjunum hleraði andstæðinga sína og var með tökin á öllu: Stjórnmálum, atvinnulífi, dómstólum og fréttamiðlum. Af hræðslu við óvininn safnast Sjálfstæðismenn nú enn einu sinni saman og kjósa sinn flokk, sem þeim finnst að berjist gegn öllu þessu. Staðreyndin er hinsvegar að það er einmitt Sjálfstæðisflokkurinn sem er líkastur Sovéska kommúnistaflokknum eins og hann var og hét: Flokkurinn er eini flokkurinn sem hefur hlerað pólitíska andstæðinga sína (Bjarni Ben hinn fyrri) og hann hefur haft tökin á: Stjórmálunum, atvinnulífinu, dómstólunum og fréttamiðlunum. Mest sláandi eru líkindin með flokksþingunum. Þar andmæla menn ekki, heldur rétta bara prúðir upp hendi og klappa. Er þetta virkilega það sem hinn venjulegi Sjálfstæðismaður vill? Ég held ekki. En: „Leiðin til helvítis er vörðuð góðum áformum“.

     

    2 responses to “Leiðin til helvítis 2”

    1. Já, Reynir, leiðinlegt hvað þér verður oft hugsað til Sjálfstæðismanna 🙁

      Vandamálið NÚNA er hins vegar að við virðumst ekki vera með mikið betri stjórnvöld. Stjórnvöld sem segjast styðja lítimagnann en eru í raun að styðja við glæpsamlegt bankakerfi sem er að mergsjúga allan kraft úr heimilum og fyrirtækjum.

      Er það heimska eða vanþekking ?

      Stundum þarf að skoða hvað menn gera í stað þess að hlusta bara á fallegu orðin.

    2. Ég er nú ekki það róttækur að ég vilji leggja niður bankakerfið. Og ekki ríkisstjórnin heldur. Fólk á í erfiðleikum, það er satt, en það er við því að búast, það eru bara nokkur ár síðan hrunið varð. Nú eiga útlendir bankar bankana. Er það óréttlátt? Þeir töpuðu mestu í hruninu. Þó við hefðum sagt já við Icesave hefðum við bara borgað brot af því sem þeir töpuðu. Við Rún létum plata okkur til að taka gjaldeyrislán á sínum tíma. Við höfum bara fengið ágætis lausn okkar mála. Bankar á Íslandi hafa alltaf tekið miklu hærri vexti en aðrir. Þeir gera það enn, það er pirrandi. Sammála því. En ég veit ekki alveg hvað ríkisstjórnin getur gert í því amk ekki svona 12og3. Þetta á að heita frjáls markaður..
      Það er ýmislegt verið að gera: Forstjóri Landsvirkjunar er ekki lengur fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, Orkuveita Reykjavíkur hefur verið tekin úr höndum stjórnmálamannanna, Landsbankinn heldur bankastjóralaunum hóflegum og lækkar skuldir af sjálfsdáðum og stjórnlagaráð vinnur að endurbættri stjórnarskrá með gegnsæi og lýðræði að leiðarljósi. Útrásarvíkingar og spilltir embættismenn eru rannsakaðir og dregnir fyrir dóm. Stöðugt fleiri stofnunum og ríkisfyrirtækjum er stýrt af fólki sem var ráðið vegna verðleika fremur en vegna pólitískra tengsla (þetta var úr DV). Ég vildi að allt þetta gengi hraðar og meir væri gert, en ég heyri líka að Sjálfstæðismenn vilja það alls ekki heldur þvert á móti. Já ég er á móti Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki allt honum að kenna, en það sem hann hefur gert er mest til bölvunar.

    Leave a reply