Author: Þrándur

  • Nýtt logo Glitnis

    Eftir sviptingar helgarinnar er hér komin tillaga að nýju logoi fyrir Glitni.

    Nýtt logo Glitnis
    Nýtt logo Glitnis

    Það er óneitanlega erfitt að átta sig á þessum aðgerðum öllum og fróðlegt að lesa ýmis sjónarmið. – Til dæmis eru fjörugar umræður hjá Agli Helga…

    Var ríkið undir stjórn Dabba og Seðlabanka í hefndaraðgerðum gagnvart Jóni Ásgeiri?

    Var ríkið að eignast miklu verðmætari eign en það lagði fram fyrir þessi 75%?

    Var farið of geyst í fjárfestingar hjá Glitni?

    Var skynsamlegast að ríkisvæða bankann?

    Eiga FL Group og aðrir “öflugir” fjárfestar í Glitni ekki neina peninga til að setja í þennan banka sinn?

    Allavega er ljóst að krónan hefur veikst mikið í kjölfar aðgerðanna og bankar eins og t.d. Saxo í Danmörku eru HÆTTIR að versla með hana. Þá eru sjálfsagt fáir eftir.

    Ég hef grun um að ýmis atriði eigi eftir að skýrast betur á næstu dögum og vikum…

  • FL Group – Galdramenn við stjórnvölinn?

    Það hefur nú verið nokkuð erfitt að skilja allar sviptingarnar á íslenska fjármálamarkaðnum. Hver kaupin á fætur öðrum voru gerð og ávallt hækkaði verðmætið – í flestum tilvikum umfram sameiginlegt virði.

    Hér er svo komið merkilegt myndband sem lýsir viðskiptum með FL Group þar sem raktar eru hreint ótrúlegar aðferðir sem virðast hafa verið notaðar til að hafa fé af hinum almenna hluthafa.

    Atburðarásin er rakin frá því að stjórn FL Group ásamt forstjóranum Ragnhildi Geirsdóttur segir af sér í Júlí 2005 vegna samstarfsörðugleika við Hannes Smárason.

    …Ljótt ef satt er.

    Það er ótrúlegt hversu miklu skýrara þetta er sett fram en ég hef séð áður.

    Síðan getur þú skoðað framhaldið hér: