-
Frétt Mánaðarins?
Posted on June 18th, 2009 No commentsFrétt mánaðarins var án efa þegar maður sem misst hefur allt sitt hér á landi tók til við “aðgerðir”. Hann leigði gröfu og var ekki nema nokkrar mínútur að eyðileggja fyrrverandi húsið sitt og grafa bílinn með.
Afar táknrænt.
Ákvörðun mannsins er ekki tekin í stundarbrjálæði þar sem hann og konan voru flutt út til Noregs og tóku þessa ávörðun í sameiningu. Hvort gjaldþrot er 60 milljónir eða 120 skiptir þau ekki öllu máli.
Þetta er náttúrulega vandinn í hnotskurn. Með því að leyfa að skuldir geti náð yfir annað en það sem lagt er að veði getur ekki hjálpað. Lánveitandi er í raun bæði með axlabönd og belti. Það er ekki nóg með að hann eignist húseignina heldur er afgangurinn af skuldinni áfram áhvílandi á einstaklingnum og hægt að halda því áfram þannig til langframa.
Í svona dæmum snúast hlutirnir samt við. Fólk sem hefur engu að tapa getur gripið til ýmissa aðgerða.
Venjulega er slíkt fólk á jaðri samfélagsins og auk þess lítill hópur.
Núna er ástandið þannig að stórt hlutfall íbúðareigenda er nálægt því að vera gjaldþrota. Stærsta verkefni stjórnvalda er að leysa þann hnút, þannig að sátt skapist í samfélaginu og hægt sé að fara að byggja upp á nýtt.
Sjá nánar:
Bankinn fékk ekki lyklana – mbl.is
Traustið hvarf og það þarf að endurreisa – Marínó G. Njálsson
Örvænting, örþrifaráð og fórnarlömb græðgi – Lára Hanna Einarsdóttir
Kraumar reiðin undir fargi ölmusukapítalismans? – Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
Táknrænn gjörningur á Álftanesi – Stefán Friðrik Stefánsson
Sorglegt…. en ógeðslega kúl! – Heiða B. Heiðars
Leave a reply