-
Nýtt logo Glitnis
Posted on October 1st, 2008 No commentsEftir sviptingar helgarinnar er hér komin tillaga að nýju logoi fyrir Glitni.
Það er óneitanlega erfitt að átta sig á þessum aðgerðum öllum og fróðlegt að lesa ýmis sjónarmið. – Til dæmis eru fjörugar umræður hjá Agli Helga…
Var ríkið undir stjórn Dabba og Seðlabanka í hefndaraðgerðum gagnvart Jóni Ásgeiri?
Var ríkið að eignast miklu verðmætari eign en það lagði fram fyrir þessi 75%?
Var farið of geyst í fjárfestingar hjá Glitni?
Var skynsamlegast að ríkisvæða bankann?
Eiga FL Group og aðrir “öflugir” fjárfestar í Glitni ekki neina peninga til að setja í þennan banka sinn?
Allavega er ljóst að krónan hefur veikst mikið í kjölfar aðgerðanna og bankar eins og t.d. Saxo í Danmörku eru HÆTTIR að versla með hana. Þá eru sjálfsagt fáir eftir.
Ég hef grun um að ýmis atriði eigi eftir að skýrast betur á næstu dögum og vikum…
Leave a reply