Hvernig á að gera arkítektúr áhugaverðan?

Bjarke Ingels er danskur arkítekt sem fer áhugaverðar leiðir. Hann notar náttúruna sem fyrirmynd og býr til fjöll úr húsum. “Fjöllin” búa til skjól, safna sólarorku og gefa frábært útsýni – bæði úr húsunum og að þeim.

Hugmyndaflug í góðu lagi.