-
Karlar að berja konur á Olympíuleikunum?

Ekki nóg með augljósan vók satanisma á opnunarhátíðinni – heldur nær óhugnaðurinn enn lengra – inn í sjálfar íþróttirnar. Einu sinni þótti það aumingjaskapur ef strákur var að lemja stelpu – nú eru tveir karlkyns boxarar að lemja konur í andlitið á Ólympíuleikunum í boxi! Það sem verra er að ábyrgðin skrifast algjörlega á Alþjóða…
-
Umsögn um Sjávarútvegsstefnu

Getur verið að Þorsteinn Már og Steingrímur J. hafi skrifað þetta frumvarp með hagsmuni Samherja og stórútgerðarinnar að leiðarljósi? Það er eins og kvótakerfið sjálft sé eitthvað náttúrulögmál sem alls ekki má hrófla við. Það þrátt fyrir að hafa skilað minna en engum árangri öll þessi ár. Sorglegt að ráðherra sem kemur úr flokki sem…
-
Umsögn um drög að reglugerð um útgáfu vottorða

Umsögn mín á Samráðsgáttinni Á COVID-19 tímanum gengu stjórnvöld allt of langt í að hlýða skipunum frá ókjörnum alþjóðastofnunum eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Það reyndist afar hættulegt heilsu landsmanna, bæði líkamlegri og andlegri. Allur sá skaði á eftir að koma skýrt í ljós á næstu mánuðum og árum. Það mætti halda að “stjórnvöld” hafi einsett sér…
-
48 dagar í strandveiðum

Að fara aftur í úrelt kerfi er skelfileg tilhugsun. Frjálsar handfæraveiðar er krafan sem Landssamband Smábátaeigenda hefur haft frá stofnun þess sambands. Þangað til það næst ætti að miða við að allir bátar fái 48 daga. Þeir megi byrja 1. apríl og veiða út september. Allt landið verði eitt svæði og byggðakvótinn komi inn í…
-
Spennandi tímar!

Þegar við reynum að skilja atburði – ekki síst úti í hinum stóra heimi – erum við alltaf að gefa okkur ákveðnar forsendur. Oft á tíðum eru forsendurnar eitthvað sem við höfum meðtekið í gegnum meginstraumsfjölmiðla. Ég er svo heppinn að við hættum að horfa á sjónvarpið fyrir um sjö árum og vorum lengi vel…
-
Umsögn um sóttvarnalög -15.2.2022

HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ Skógarhlíð 6 105 Reykjavík Reykjavík 15. febrúar 2022 Efni: Umsögn um frumvarp heilbrigðisráðherra til sóttvarnalaga – mál nr. 26/2022. INNGANGUR: Í næstum tvö ár hefur heimsbyggðin upplifað sérkennilega tíma. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin tilkynnti heiminum vorið 2020 að kominn væri upp heimsfaraldur. Fréttamyndir frá Wuhan í Kína sýndu deyjandi fólk úti á strætum og tölur…
-
Heilaþvotturinn

[Erindi mitt byrjar á 27:23] Þegar við horfum á atburði líðandi stundar er stundum gott að kynna sér söguna og þá kemur ýmislegt fróðlegt í ljós.Snemma á 20. öld voru fræðimenn áhugasamir um hugsun og mannsheilann og hvernig hægt væri að stjórna hegðun með ýmsum leiðum.1956 kom út skýrsla um heilaþvott kommúnista á bandarískum hermönnum…
-
Nürnberg kóðinn

[Erindi mitt byrjar á 27:35] Nürnberg réttarhöldin voru fyrstu réttarhöldin af tólf vegna stríðsglæpa hátt settra þýskra embættismanna og iðnrekenda sem yfirvöld í Bandaríkjunum héldu á hernámssvæði sínu í Nürnberg, Þýskalandi, eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. 23 sakborningar, þar af 20 læknar og 3 embættismenn voru sakaðir um að hafa tekið þátt í tilraunum nasista á…
-
Glæpir gegn mannkyni

[Erindi mitt byrjar á 33:16] Nürnberg 2.0 réttarhöld eru í undirbúningi með hópmálsókn þúsunda lögfræðinga og heilbrigðisstarfsmanna um allan heim, undir forystu þýska lögfræðingsins Reiner Fuellmich. Þar eru sóttir til saka þeir sem bera ábyrgð á Covid-19 hneykslinu sem Davos ráðstefnan stjórnaði. Rétt er að rifja upp að Reiner Fuellmich er lögfræðingurinn sem tókst að…
-
Markaðssetning dauðans

[Erindi mitt byrjar á 35:50] Áróður, ritskoðun og þöggun Við lifum á tímum áróðurs, ritskoðunar og þöggunar sem aldrei fyrr. Hér hefur verið rekinn gegndarlaus hræðsluáróður af stjórnvöldum, fjölmiðlum og samfélagsmiðlum, þar sem eina lausnin hljóti að vera sprautun með erfðabreyttu lífefni. Frjáls hugsun er miðstýrð í eina “rétta” átt með því að þagga niður…
-
Athugasemdir við frumvarp til sóttvarnalaga

Á þessu ári hefur heimsbyggðin upplifað sérkennilega tíma. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin tilkynnti heiminum í vor að kominn væri upp heimsfaraldur. Fréttamyndir frá Wuhan í Kína sýndu deyjandi fólk úti á strætum og tölur bentu til skelfilegrar dánartíðni af þessum sjúkdómi. Fljótlega fóru stjórnvöld landa í ýmsar aðgerðir til að “fletja kúrfuna”. Fyrst var talað um tvær vikur…
-
Saga olíu og auðs 20. aldar er athyglisverð

Við höfum öll heyrt um Rockefeller og Rothschild fjölskyldurnar ásamt fleirum sem högnuðust gríðarlega á olíuviðskiptum á 20. öld. Í þessum heimildarmyndum sem James Corbet hefur sett saman, rekur hann hvernig þetta gerðist og hvers vegna. Þarna kemur margt fram sem er athyglisvert og ekki oft talað um. Hugmyndir um kynbætur mannkyns (Eugenics) sem snerust…