-
Icesave auglýsingin sem aldrei birtist…
Hér er komin “bráðsmellin” auglýsing sem gerð var rétt áður en hrunið kom og birtist aldrei (kennski sem betur fer). Icesave samkvæmt auglýsingunni er algerlega GEGNSÆTT og hefði þá kannski endirinn átt að kveikja á einhverjum perum þar sem veggirnir á klósettinu eru líka gegnsæir 🙂 Minnir mann á máltæki eins og “ekki kasta steini…
-
Svindl útsölur?
Hjólaverslanir auglýsa nú grimmt “útsölur”. Þegar betur er að gáð virðist samt eitthvað skrítið vera í gangi. Á myndinni er vinsælt hjól sem er auglýst á vef Everest á 44.995 krónur. Með auglýstum 30% afslætti á öllum hjólum ætti það því að kosta 31.496. En – viti menn – “útsöluverðið” er enn um 42.000 krónur…
-
Stýrikerfi: Google eða Microsoft?
Undanfarin ár hefur sterkasta vígi Microsoft verið stýrikerfið Windows. Nú hefur Google lýst yfir að þeir ætli að bjóða stýrikerfi fyrir einkatölvur. Stýrikerfið nefna þeir Google Chrome OS og vísa þar í Chrome vafrann sem náð hefur miklum vinsældum. Stýrikerfið verður þannig byggt á vafranum og fellur vel inn í alla flóru kerfa sem Google…
-
Dansandi hugmynd?
Hvernig fer frumkvöðull að því að fá aðra til að fylkja sér á bak við hugmynd? Jú – hann byrjar “hreyfingu”… Í þessu myndbandi er frumkvöðullinn í fyrstu einn og einmana að dansa trylltan dans. Fljótlega bætist einn í viðbót við. Þegar sá þriðji kemur í hópinn verður SPRENGING – allir hópast að og taka…
-
N1 Start – Hugmyndafundur?
Þessi fyrsti hugmyndafundur N1 kom bara nokkuð vel út. Fyrst og fremst var hann góður til að byggja upp jákvæðni og bjartsýni á framtíð Íslands, sem veitir ekki af þessa dagana. Hermann Guðmundsson forstjóri N1 fór vítt yfir sviðið og talaði um framtíðina og hvernig við þurfum sem þjóð að huga að menntun ungmenna og…
-
Hagfræðifyrirlestur – Áhugavert…
Kjallaragenginu var að berast upplýsingar um áhugaverðan fyrirlestur: William K. Black: Why Economists Must Embrace the “F” Word (Fraud)? Hefst: 11/05/2009 – 12:00 Lýkur: 11/05/2009 – 14:00 Staðsetning viðburðar: Askja Nánari staðsetning: Stofa 132 William K. Black prófessor er frá University of Missouri. William Black hefur ritað bók um rán á banka innanfrá „The Best…
-
Tilgangsleysi allra hluta…
…eða “Story of Stuff” Saga “hluta” rakin frá auðlindum, framleiðslu, sölu, notkun og þar til þeir verða að úrgangi. Skýrir á myndrænan hátt hvernig allir þessir hlutir í kringum okkur hafa áhrif á samfélagið bæði nær og fjær og hvernig þetta er meira og minna hulið fyrir hinn venjulega neytanda. Story of Stuff er rúmar…
-
Davíð Oddson, Lalli Johns og fjármálin
-Sendi ykkur flottar myndir af Davíð Oddsyni og Lalla Johns. En þessum myndum fylgir saga. Þannig var að Davíð Oddson var á gangi í miðbænum og hitti þar á förnum vegi Lalla Johns og tóku þeir tal saman eins og þeir eru vanir. Áður en þeir kveðjast þá spyr Lalli Davíð hvort hann geti séð…
-
Alheimsstríð lánardrottna
Dr. Michael Hudson skrifar athyglisverða grein í Fréttablaðið. Þar bendir hann á að nú er í gangi alvarlegt efnahagslegt “stríð” þar sem lánardrottnar eru að soga allar eignir til sín með gríðarháum vöxtum. Með því að heimta okurvexti af skuldsettum fyrirtækjum, heimilum og ríkjum eru þessir aðilar settir í skuldafjötra. Hann segir t.d. blákalt: Bandaríkin eru…
-
Útrásin dauð?
Það hefur nú ýmislegt gengið á í efnahagslífi íslendinga undanfarnar vikur og oft rætt um útrásina sem eitthvað neikvætt. En það er nú samt svo að í allri þessari kreppuumræðu vill svolítið gleymast að það eru enn til útlönd og það eru enn til kaupendur að ýmis konar vöru og þjónustu á erlendri grundu. Ég…
-
Sterling RIP Myndböndin
Nú eru komin tvö myndbönd á YouTube um Sterling flugfélagið og aðkomu Pálma Haraldssonar, FL-Group/Stoða, Fons og fleiri að þessum sérkennilegu viðskiptum sem enduðu með gjaldþroti Sterling. Verð að viðurkenna að ég er ekki nógu góður í bókhaldi til að skilja allar þessar æfingar. Finnst þessar sölur þó óneitanlega vera afar vafasamar. Virðist vera sniðug…
-
Ótrúleg saga af okri…
Ég fór í byggingarvöruverslun í dag og var að kaupa smá bandspotta til að endurnýja þvottasnúrurnar. Fékk eina 30 metra af þægilegu bandi. Þegar ég kem á kassan set ég spottann á afgreiðsluborðið og rétti stúlkunni miðann með vörunúmerinu. Stúlkan: “Þetta verða þá: Fjórtán þúsund níu hundruð og nítíu” Ég: “Það getur nú varla verið.…